Bono
Þeir sem kunna að meika það
Menntamenn
Litla Telma Þorunn
Myndir
07.09.2007 01:31:08 / Bono

Jæja Kallinn kominn aftur eftir 3 mánaða frí!!!

 

Þá er sumarið næstum búið og hefur maður gert lítið annað en að vinna eins og þræll...En margt gott hefur gerst það sem nú stendur upp úr sumrinu er t.d. að Telma átti fyrsta afmælið sitt þann 07.07.07 Bubbi beið í 50 ár til að fá svona flottan afmælisdag en Telma bara 1 ár... Svo fórum við F11 Group til Köben í Júlí sem var glæsileg og mjög góð ferð í alla staði....Svo var farið til Gautaborgar um verslóhelgina á sjálfa Rolling Stones Það voru hreint út sagt magnaðir tónleikar og fyrir ykkur sem halda það að þessir gaurar séu að fara að drepast er það ekki að gerast á næstu 34 árin.....en svona á milli okkar geta þeir verið svona lala upphitunarband fyrir U2:) Svo var verið að vinna og vinna svo aftur vinna annað en Ingþór sem er bara á svona kynlífs-ströndum á mallorca í 3 mánuði og svo er bara farið til Flórída svo tala þeir um léleg laun í Löggunni hahahaha!!!!!

En nú er skólinn aftur farinn að rúlla og þeir byrja bara með láttum þarna mæti halda að þeir vissu ekki að maður þarf að vinna einhvað.......

En svo fékk Sunneva mín áframhaldandi vinnu hjá Icelandexpress og líka þessa fínu vinnu enda þeir sem eru í F11 group fá líka traning í að verða afbrags fólk hjá stórnarformanni F11 group....Enda hækkuðu hlutabréf í Ielandexpress um 50% eftir ráðinguna....Enda Rokk-klúbburinn stórkúnnar hjá fyrirtækinu!!!!

Svo má nú tilkynna það fyrir ykkur sem ekki vita að Liverpool er í efsta sætinu í enska og man.udt. menn mega nú svona fara taka hausinn á sér upp úr sandinum og játa sig sigraða ég sé ekki Rió tite fara stoppa Toresinn frekar en M-3000 stoppar Bonoinn í tippleiknum Rio tite og Mínus-3000 eiga ekki sénss í Toresinn og Bonoinn ekki séns vonlaust case hjá þeim.....

En þetta var nú svona gróft yfirlit yfir það helsta hjá mér og mínum bið að heilsa í bili!!

 

Walk on Bonoinn!!!!

 

» 7 hafa sagt sína skoðun

24.05.2007 23:56:30 / Bono

Næstu fréttir 1.sept.2007

 

 

 

 

 

Sumarfrí

 

 

 

 

 


» 6 hafa sagt sína skoðun

09.05.2007 00:48:15 / Bono

Helst að frétta frá F-11

Jæja gott folk það er búið að vera nóg að gera hér á þessu heimili, nú á ég bara eitt próf eftir á þessari önn sem er á föstudag og búinn með 3 á einni viku sem hefur verið nokkuð strembið en gengið ágætlega......

Svo er Sunneva mín nokkuð stressuð hún er að fara í fyrsta flugið sitt í nótt eða fer um um 4:45 ég kalla það nótt... Hún mun fara til Köben Þannig að ég og mín yndislega Telma mun vakna ein á morgun og leika smá áður en hún fer svo í pössun hjá fræku sinni og til ömmu sinnar....En ég og Telma litla óskum Sunnevu okkar bara góðs gengis í fysta fluginu hún mun standa sig vel þar eins og alltaf sama á hvaða vettvangi það er!!!!!

Svo er stór helgi framundan FIFA-mót á föstudag og svo Eiríks-laugardagur.... hann kemst leikandi í gegnum þessa forkeppni hef enga trú á öðru svo það verður allt lagt í sölurnar að minni hálfu að gera íbúðina hans Sveins Antonar fokhelda á Eiríks-laugardag en hann er búinn að bjóða Bonoinum í party sem verður trukkað heldur betur....Svenni verður með vafður í svuntuna og gerður að kokki í um 2 klukkustundir og einnig að bjórsækir.......

Svo stoppar ekki þetta einelti að hálfu Norðmannanna þeir stunda báðir vörumerkjasvindl og búa til skáldsögur með íblöndu af lygum en þeir eru rauðhærðir.....en góðir drengir samt sem áður, fyrir þá sem ekki vita eru norðmennirnir Mínusinn og Pepsíflaskan vörumerkjasvindlarar...ætli þeir fara ekki næst að kaupa sér SKODA árgerð ´89 (sem Sammi krúsaði um bæinn á hér forðum með Ingþór í dauðasætinu) já og taki merkið af skodanum og þeir setja Benz merkið á Skodan eða hvað veit maður þegar að norðmenn eru á ferð!!!!!

Ég ætla mér ekki að nefna tippleikinn við annan norðmanninn en það þarf samt að kalla á lögregluna til að mæla bremsufarið í buxunum hans.... það er ekki nóg að koma með reglustiku af stærðstugerð!!

Bono Walk on


» 0 hafa sagt sína skoðun

28.04.2007 22:58:21 / Bono

Vil óska SIR Alex FERGUSON til hamingju með sigur í enska boltanum!

 

Hér með vil ég koma á framfæri hamingju óskum til allra Man.Udt. Aðdáenda....Ferguson er án efa einn allra besti stjóri sem uppi hefur verið í þessu fagi og á hann þetta skilið....

 


» 5 hafa sagt sína skoðun

17.04.2007 14:27:25 / Bono

Tóta Hajrtar á afmæli í dag!!!

 

Við hér á ritstjórn viljum óska Tótu H til hamingju með daginn!!!! en hún er fædd '58 og nú er 2007 þannig reiknið!!!

Núna er allt að gerast í skólanum próf framundan mikil pressa á kallinum á að standa sig og Sunneva á faraldfæti um evrópu í fluginu en ég og Telma litla munum gæta þess að allt verði under control í Fífulind erum vel græjuð ef stripparar fara á stjá eða einhverjir ólætabelgir þeir verða bara teknir úr umferð um leið!!!!

Talandi um að taka úr umferð þá voru tveir teknir úr umferð hjá Rokk-kúbbnum vegna óhemju mikillar ástarveiki hjá þeim, en ástarveikin hefur náð tökum á þessum tveimur gæjum og gert þá að kremi!!!!! Meðal annars sem hafa fengið ástarveikina er t.d. Sammi, Gassi GSM-samband, Hannibal á mannakjöti......og fleirri vitslóla menn.....

Ein góð saga frá M-aranum sem hringdi í gær í panic vegna þess að hann er á góðri leið með að missa annan 70.000 kall vegna þess hve hann er lélegur í að spá í leiki...t.d. fékk hann heila 7 leiki rétta af 13 seinustu helgi og þarf væntanlega að fara selja einhvað af þessum kofum sínum hér á Íslandi til þess að borga nauta-kjötið mitt á einhverju rándýru veitingahúsi hér á Reykjarvíkur svæðinu.......

Walk on Bono


» 3 hafa sagt sína skoðun

06.04.2007 02:25:43 / Bono

Hann er orðinn Sir ég fæ mitt innan tíðar!!!

Fyrir nokkrum dögum var Paul David Hewson nokkur gerður að Sir Paul David Hewson. Bono er þess vegna orðinn að Sir Bono...

Athöfnin átti sér stað hjá enska sendiherranum í Dublin og þar tók Bono við þessari nafnbót - The Most Excellent Order of the British Empire - eins og heiðurinn heitir fullu nafni.

Fólki er samt ekki skilt að kalla hann Sir Bono þar sem Bono er írskur ríkisborgari en ekki Breti. Sagðist hann hafa tekið við þessari nafnbót vegna hljómsveitar sinnar, fjölskyldu, og þeirra málefna sem hann stæði fyrir.

Þá bætti Bono við að hann væri hljómsveitarmeðlimum sínum þakklátur fyrir að hafa ekki gefist upp á honum og mannréttindaframapoti sínu fyrir löngu síðan.....

En ég er víst bara enþá Bono fæ víst Sir eftirnafnið mitt bráðum vegna starfa minna í Rokk-Klúbbnum sem er góðgerðamál fyrir að leyfa nokkrum ungum drengjum sem eiga við erfið vandamál að stríða s.s. geðræn og lílamlega að ferðast um heiminn með mér!!!

 

 

 


» 2 hafa sagt sína skoðun

24.03.2007 02:52:41 / Bono

Allt að gerast!!!!

 

Mig langar að byrja á bjarstsýnasta manni veraldar sem vill starta nýrri orustu við sjálfan Bono það er engin annar en M-3000 sem hefur grátið sig í svefn undanfarna 10 mánuði eftir hrotalegt afhroð gagnvart mér í tippleik sem kostaði M-3000 65.987kr á einu kvöldi.... Þessi góði strákur fékk það heldur betur óþvegið hann sá aldrei til sólar og gefst ekki upp... það er svo gaman af þessum Blikum þeir grafa bara dýpra þangað til þeir komast ekki lengra og hoppa svo ofaní og öskra!!!! þið megið byrja að moka strákar!!!! En hann vill þetta!!!! Þetta byrjar á morgun tippleikurinn ég hef ekki samúð með svona mönnum!!!! en hann vill þetta blessaður!!! jæja það verður GAMAN að REFFFFFFsssa honum litla bolta stráknum mínum honum Malli mínum:) og segja svo við hann PAY and SMILE!!!!!!

Svona viljum við hafa það!!!!! eins og segir í textanum!!!!

  VS.

Eins og sjá má þurfti M-3000 eða eftir seinustu viðureign M- mínus 3000 að fá sér aukavinnu til að eiga fyrir salt í grautinn:)!!!!!! vona að fara ekki eins illa fyrir kauða!!!:)

EN stóra stundin er að renna upp það er að renna í hlað dagskrá hjá Rokk-Klúbbnum, það er á dagskrá svaðalegir tónleikar með sjáfum ROLLING STONES í Gautaborga á þessu ári.... en það er í vinnslu og mun ég koma með nánar info síðar!!!! En eins og sjá má er það vel valinn hópur sem er þar á ferð og þarna er sjálfur RK á ferðinni í Dublin!!!!!!

 

 

 Walk on Bono

 

 

 

 

 


» 3 hafa sagt sína skoðun

11.03.2007 23:36:35 / Bono

Hver er munurinn á fagmanni og áhugamanni???

 

Hér er ég með gott dæmi um áhugamann sem er til vinstri og fagmann til hægri!!

Eins og sjá má var ég hinn mikli lífvörður sem tók að mér að kenna þessum dönum hvernig á að gæta Möggu Drollu.... Hún Magga mín kom víst út um gluggann og öskraði á þennan mann sem var að sofa í vinnunni og sá þá Sveinsson vera á svæðinu og sagði mér að senda þennan hjálm heim til sín ég sagði  við hana ekkert mál Magga mín ég skal passa þig á meðan þú finnur einhvern sem getur staðið hérna án þess að sofana!!!! Henni Möggu minni var létt að fá þennan jaxl til að passa sig í smá stund eftir 24 tíma kom svo einn bauni og þá fékk ég fínt kaffi hjá henni Möggu minni og svo fór ég með Sunnevu á Strikið og voru bara hress með að geta hjjálpa Möggu Drollu aðeins!!!!

 

 

Svo spyr ég mig hvort uppeldið sé að fara úr böndunum hjá okkur stundum!!! en svarið er nei því hún Telma mín var bara að velja sér spólu hún var ekki að gera þetta til að látta pabba sinn þurfa að sortera allt upp á nýtt!!!!


» 2 hafa sagt sína skoðun

07.03.2007 23:04:45 / Bono

Hvað er hægt að segja!!! 10 sek.á móti Real!!!

 

Heyrðu hef sagt þetta nokkrum sinnum við vini mína að Bayern Munchen er lið sem skrifar í sögubækurnar, og sumir af vinum mínum ganga um í skítugum nærbuxum og hlægja og reka svo við þessir sem eiga í hlut!!!! EN aftur á móti hef ég alltaf rétt fyrir mér!!! og en og aftur voru Fc.Bayern að skrifa í getsabók fyrir söguleg afrek!!!! Og ekki má nú gleyma Liverpool sem lögðu Barca að velli þannig þetta er búið að vera góð úrslit fyrir mín lið.....vona bara að þau lendi ekki á móti hvort öðru fyrr en í úrslitaleiknum!!!

Walk on Bono


» 1 hafa sagt sína skoðun

22.02.2007 22:05:01 / Bono

Eins og við manninn mælt! Barcelona skeit á sig!

 

Jæja gott fólk þá er þessari geðveiki lokið og fór bara nokkuð vel hja mínum liðum það mun allt stefna í það að spánverja kvikindin hafa lokið keppni í meistardeildinni Liverpool sá um Barca og Bayern eiga en eftir að rota bráðina sem er Real Madrid þar sem Bayern skoruðu 2 sinnum hja þessu glanssokkabuxum!

En annars er allt gott að frétta af F11 allir hressir og káttir.....Nú er hún Sunneva mín að útskrifast á Laugardaginn úr sálfræðinni sem er frábært hjá henni og óskum við ritstjórnin hér á þessari síðu henni hjartanlega til hamingju með áfangann!!HEIRHEIR!!!! Enda búa bara sigurvegarar á F11!

Svo á miðvikudaginn næstkomandi munum við sigurvegararnir Ég og Sunneva fara til Köben....að leika okkur aðeins og fá okkur dansk smurebrod að hætti húsins!!!það mun eflaust verða fín ferð enda Sunneva mín loksins komin á heimavöll hjá Danska-konungsveldinu en við munum skilja litlu Telmu Þórunni eftir heima til að passa húsið, hún mun reyndar verða með 3-4 þjóna sér til aðstoðar sem er gott mál!!!!

En Hjörtur Sveinsson vann í getraunaleiknum og fær hann eitt kok-glas á steylnum í verðlaun og kannski einhvað að borða í janúrar 2098!!!neinei smá grín 2097

Walk on Bono í F11 


» 3 hafa sagt sína skoðun

17.02.2007 00:08:08 / Bono

Er farið að fara um marga Liverpool menn????

 

Sæl verið! Ég er farinn að hugsa mikið um leik sem fer fra næstkomandi þriðjudag, það er óhætt að segja að sé leikur sem á eftir að standa undir sínu! Þar fara stærstu knattspyrnulið í heimi!! nei það er ekki Man.und en Forest Oli minn! ekki Molde kannski seinna þeir spili þar!!! NEI Ingþór ekki Hörður á Patró ef íþróttafélag má kalla! Heldur eru það eins og ég sagði STÆÐSTU LIÐIN í heimi!!!!!!

  VS. 

Ef einhver getur rétt úrslit um leikinn á þriðjudag þá á hin sami inn máltíð hjá American steyl inn hjá mér!!!! eins og sést þá er hér orð mín til staðfestingar!!!!


» 10 hafa sagt sína skoðun

31.01.2007 07:28:30 / Bono

Pingó Patró dansar!!!!!

Hér á myndinni má sjá Pingó eða nánar Ástþór vera að reyna að komast inn í Konunglega Sádí-Arabíska balletskólann ef myndin er skoðuð vel þá má sjá að parketið dúar við þessa iðju hjá kallinum! En Ástþór eða Pingó eins og hann er þekktur í ballet-heiminum hefur greinilega ekkert að gera fyrir vestan og er áskrifandi af laununum sínum! En það má nú segja að Pingó hefur fundið ástina á ný og er hann byrjaður að blogga aftur og allt að gerast hjá þessum dansara en hann fékk 2 vistmenn af kleppi til að dansa með sér í þessu sjói við óskum Pingó Patró til hamingju með þessa áskorun!!! 


» 4 hafa sagt sína skoðun

29.01.2007 00:54:35 / Bono

Sælar!!!

jæja nú er helgin á enda komin og nú er að renna ný vika af stað með nýjum verkefnum og hasar!! Knatspyrnu-klúbbnum var boiðið í einhvað firma-mót á laugardaginn og ekki að spyrja að því að ég var valinn maður mótsins og við komust í 8-liða úrslit þar sem við eru svo harðir í klúbbnum þá höfðum við ekki tíma til þess að spila meira sögðum bara við þá sé héldu mótið ,,þið megið eiga þessi verðlaun eigum ekki pláss fyrir meira af svona drasli" þeir sem áttu að spila við okkur víst í 8 liða úrslitum var  Atli Edvalsson og fleirri kallar sem unnu mótið.....ekki ætlaði ég að enda ferilinn hjá þessum köppum með niðurlægingu!!!

En varð fyrir dálítilli furðulegri reynslu í nótt!!! Það var byrjað að hamast á dyrabjöllunni hjá mér 6 í nótt....ég spyr Sunnevu hvort hún hafi verið að panta pizzu eða einhvað segi henni að fara til dyra!!!! hún heldur bara afram að sofa!!!! eftir 25 min er ennþá verið að hamast á bjöllunni minni þá fer ég fram og ætla gá hvað er í gangi!!!tek upp dyrasímann heyri þá einhverja kalla vera að tala saman!!!! ég fer þá fram á gang og ætla að staðdeyfa þessa andskota...ríf upp hurðina niðri þá standa 2 lögreglumenn.... ég róast og spyr þá hvort þeir vilji kaffi eða hvað sé málið og læt þá vita að Meistaramót Árna í FÍFA sé löngu búið en þeir mættu alveg vera með næst!!!! þeir vilja það en það sé reyndar ekki málið sem þeir komu víst á F 11....þeir benda út í horn og spyrja hvort þessi maður þarna búi í stigaganginum og horfi út í horn og mér brá þar stóð fullorðinn karlmaður NAKINN og með skaufann út í loftið! ég gat víst ekki kvittaði fyrir að þessu sinni hvort ég vissi hvaða maður þetta var og segji við Löggurnar strákar afhverju hömuðu þið svona á einni bjöll hér í stigaganginum??þeir sögðu bara það var einn gáfður sem býr hér og það er þú kallinn ég sagði þá hey gott svar ég er farinn að sofa járniði kvikindið!!! fór svo upp og spurði Sunnevu varst þú að panta strippara elskan?  ha ég nei!!! afhverju!!!! svarið er fyrir ofan!

Bono biður að heilsa öllum allsberum köllum í Kópavogi


» 0 hafa sagt sína skoðun

22.01.2007 22:52:31 / Bono

Glæsilegur sigur hjá Íslandi!

Glæsilegur sigur hjá  okkar sterka handbolta-landsliði á Frökkum....þetta var rosalegur leikur hjá strákunum...... Þetta lið hefur karakter og menn eins og Guðjón Valur eru rosalegir og þetta er maður sem á skilinn titilinn íþróttamaður ársins og Birkir Ívar magnaður og allt liðið stórkostlegt!!!! við skulum ekkert minnast á leikinn i gær hann var bara æfingaleikur fyrir þennan leik!!!! Annað en tuðrusparkararnir sem eru alltaf til ama! EN ekki má nú gleyma Liverpool sem tóku æ mann ekki hvað þetta lið heitir spila í bláum búningum geta ekki neit í rassg.... og man.udt. tóku upp á því að drulla upp á bak sem er gott mál og nú erum við að sigla á toppinn við Liverpool menn... Þetta er búinn að vera góð helgi í boltanum hjá mínum liðum ekki hægt að segja annað!!!!

En verðum í bandi!

Walk on Bono


» 0 hafa sagt sína skoðun

10.01.2007 00:52:42 / Bono

Guð minn góður!!!!!! 4-9 í tveimur leikjum!!!

Þettar er búið að vera rosalegir seinustu 2 leikir hjá Liverpool í báðum bikarkeppnum vá!!! ég óska bara Arsenal til hamingju með þessa sigra!!!!

Jæja þá fer heilsuátakið 2007 að renna i hlað og vöðvarnir að fá að njóta sín en betur en hjá mér en Ingþóri!! og verður byrjað á fullu á föstudaginn kemur og lóðunum fleygt upp og niður!!! þá er ég að tala um hunduð kílóa ekki þessi gröm eins og Ástþór(Pun..þór nei ingþór er að rembast við á Siglufirði!

En Guðmundur Ingvarsson er nýr Árna-meistari í FIFA-2007 og óskum við honum til hamingju með sigurinn og Júlís fékk bjartasta vonin í mótinu og fékk glæsilegann vinning!!! í saman móti fékk Fannar og Svenni Amezing Ólafsson bjartsýnis verðlaunin fyrir það að halda að þeir gætu unnið einhvað í mótinu!p.s. ég fékk heiðurs-verðlaun!

Wlak on Bono


» 1 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 5